Katie the catwomen

Dagbók í ekki svo miklum trúnaði!

09.04.2007 17:03:35 / Katrín

Jæja...

Ég er nú að hugsa um að hætta með þessa síðu þrátt fyrir að svona gríðarlega margir vinir minir lesi blogið mitt:$ Einhverjir munu fá orð í eyra næst þegar ég sé ykkur:!: Allavega fréttir af okkur mæðgum má finna á www.olofalda.barnaland.is og svo á www.katrinj.minnsirkus.is :) er miklu duglegri þar og set inn myndir og svoleiðis þar ;) Bæjó:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 09:29:50 / Katrín

Hver ert þú??

Ég er svo forvitin að vita hverjir eru að kíkka á síðuna mína... sé það er alltaf einhver slatti sem kíkkar hérna inn þrátt fyrir mjög svo lélegan bloggara:$ Allavega ekki vera feimin;) Og muna volare- ef einhverjum vantar eða vill halda kinningu!! ;) $Aƙ 㨸Ϣ浩条⁥胢梜瑴㩰⼯敲摮牥⸲湳灡楦桳挮浯爯湥敤㉲椯㵳留㙰兡║䌷㌥畄㙰䭒瑋㌥硁牸啋㝰䡂㝄潋牦╪䐳潑牦㝪╴䐳牺晒啄╘䄳入兡杸㌥牄㌥㡆䬷㙒煸硰兑湊湸䩇慸䩊癸甸捏砵兑けお偊攰偬煮晰瑖╂䘳䬪灕䈷午煈祱堷㙈塧䝐║䌷畒㙰公║䌷漯㵦〵㔬〹㐬㈴胢₝慣湮瑯戠⁥楤灳慬敹Ɽ戠捥畡敳椠⁴潣瑮楡獮攠牲牯⹳

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 11:57:31 / Katrín

Aloe Vera!

Jæja hvað segið þið þá? :) Héðan er bara allt gott að frétta nema buddan er orðin ansi þunn8| Þannig að ef einhverjum vantar vörur eða er til í að halda kynningu þá væri það allveg magnað!!! :D Endilega láta mig vita:) Við mæðgur.. Mamma ég og Ólöf Alda erum að hugsa um að kíkka á krókinn um helgina og reyna að halda einhverjar kynningar þar:) Og auðvitað knúsa hana ömmu gömlu pínulítið:) Annars er allt óbreytt... við Ólöf Alda alltaf bara heima en hún er samt mjög hress núna og rosalegur orkubolti! en hvítu alltaf jafn lág:( En af því að hún er svona hress þá hlýtur henni að fara að batna bráðum... meira að segja byrjað að minnka lyfin hennar sem er nottla bara frábært!! :D 

En jæja nóg í bili:)

Katrín volarekella8) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 10:02:20 / Katrín

Ella Gella!!!

Hún Ella sæta systir á afmæli í dag!!! 19 ára gella! Sem sagt sex ára munur á okkur, sem mér finnst ótrúlegt því ég verð mjög sjaldan vör við þennan mun! Hún nottla býr hjá mér gellan og erum við því saman alla daga og það slettist rosalega sjaldan upp á vinskapinn enda er hún svo þroskuð kellan og veit hvenær er best að leyfa mér að ráða hehe :klikk: Sökum þess hve fúl hún var yfir því að nafið hennar skyldi ekki birtast einu sinni í síðasta bloggi þá verður þetta blogg alfarið tileinkað henni:) Ella er allveg einstök! Hún er fósturmamma tveggja barna og ráðgjafi tveggja eldri systra sinna hehe og á hún það til að hneikslast all verulega á systrum sínum tveimur hehe :$ En hún lærir með týð og tíma .... og reynslu ;) En það er allveg ótrúlegt hvað við erum góðar vinkonur í dag miðað við það hvað hún var mikið pain in the.... En hún hefur nú gert ýmislegt í gegnum árin til þess að fá að hanga með stóru sys.. t.d. þá klagaði hún mig voða sjaldan þegar ég var pína hana þegar við vorum litlar.... auðvitað ætlaði ég mér aldrei að meiða hana en stundum gekk stríðnin aðeins of langt... t.d einu sinni vorum við upp í hesthúsi með pabba og litla dýrið var búið að fara eitthvað í taugarnar á mér og ætlaði ég að grýta í hana snjóbolta nema hvað að boltinn fór aðeins of hátt og beint í stærðarinnar grýlukerti sem lenti beint ofan á hausnum á greyinu... en hún sagði við pabba að þetta hefði verið sér að kenna að hún hefði verið að lemja í húsið eða eitthvað þess háttar hehe þessi elska!! annað dæmi .. þegar við vorum eitthvað um fimm og ellefu ára þá vildi hún endilega fá að hanga í rassinum á mér og frænku okkar og við sögðum henni að hún mætti það ... EF hún myndi stela nammi í videoleigunni ( en þar var fyrsti svona nammibarinn). Nema hvað hún var gómuð greyið og karlinn sagði við hana að hún skyldi skila namminu og hypja sig út... hann vildi sko enga þjófa í búðinni sinni! Ég þóttist ekkert þekkja hana og borgaði nammið mitt og labbaði svo í róleg heitunum út á eftir henni ( veit góð systir). Þegar út var komið þá sagði Ella, Katrín opnaðu nammipokann... hehe og þá voru allir vasar tæmdir hehehehehe við höfum mikið hlegið að þessu í gegnum árin hehe.. En mér til varnar fyrir það hve vond systir ég var hérna í den tid! þá var það bara ég og aðeins ég sem fékk að pína hana! Aðrir fengu að kenna á því !! :klikk: 8) Allavega ... Takk elsku Ella fyrir að vera allveg eins og þú ert litli Gullmoli!! Þú ert yndisleg systir og frábær frænka ( já eða fósturmamma) Veit að Hrabba mun taka undir það með mér!! 

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 15:33:46 / Katrín

Jæja kannski pínu blogg...

úff það er nú samt ekkert að frétta héðan... við mæðgur erum lokaðar inni þar til það kemur eitthvað út úr síðustu rannsókn sem hún fór í og það ætti að taka tvær vikur í viðbót! Ég er að verða nett þunglynd á þessu hangsi.. ég sem er svo vön að hafa helling fyrir stafni... t.d. þegar ég var í VMA þá var ég að vinna á Greifanum, í Kristjáns bakarí, með Snowcrossþætti og í leikfélaginu!!! En núna er það við mæðgur að rotna saman heima.... veit ekki hvorri leiðist þetta orðið meira mér eða henni! Ég fer reglulega dótabúð og kaupi eitthvað nytt handa henni.. dót eða spólu eða eitthvað en henni er farið að langa svo mikið út og að hitta fólk! Hún verður eins og ég veit ekki hvað þegar það kemur fólk í heimsókn!!! Greyið hún er komin með svo mikið ógeð á mömmu sinni! Svo er ég alltaf að bíða eftir svörum frá Akureyrarbæ,, málið er að ég átti að fá stuðningsaðila tvisvar -þrisvar í viku svo ég geti farið eitthvað út, t.d. í búð eða ræktina!! ohhh ræktina.... hreyfa sig... langar svo út:( vonandi fer hún bara að hressast svo maður geti farið allavega með hana í heimsókn! Vorkenni henni agalega! En mamma ætlar að vera með hana helgina 9-10 feb þá fáum við báðar pínu frí... því ég er að fara suður að hitta frænkur mínar!! JEJJ get ekki beðið!!! DJAMM DJAMM DJAMM SUKKERÝ SUKK!! Það verður nú algjör orkubomba því þær eru allar svo miklir stuðboltar og þá stendur Erna nú uppúr!! Hún er svo mikill snillingur! það sem manneskjan lendir ekki í ... flugvallarsagan er nottla bara snilld.... hehe JEJJJ hlakka svo til!! :haha: :haha: Allavega bestu kveðjur Katrín innipúki;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 13:13:20 / Katrín

Minn sirkus:)

hæhæ bara að láta ykkur vita að ég er komin á minn sirkus undir nafninu katrinj :) endilega kíkkið þangað og skráið ykkur þar inn... ( mun samt kannski halda aðeins áfram með þessa síðu... ) allavega... sjáumst á minnsirkus!

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 18:07:15 / Katrín

Volare....

er að fara að panta á morgun ef einhverjum vantar;) En annars er bara gott að frétta héðan... Fúsi örugglega búinn að finna bíl handa mér! :D Þannig að ef einhverjum vantar far til Ak á sun þá endilega láta mig vita;) Fer suður að sækja bílinn minn á fimt eða föst... ekki alveg ákveðið! hehe komin smá spenningur í mann;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 20:22:54 / Katrín

Jæja kæru vinir;)

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þitt blogg svo að ég geti svarað hjá þér ?

» 11 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 10:28:06 / Katrín

og úr varð djamm!!

jú jú auðvitað dreif mín sig á djammið... stubba fór til pabba síns á laug og ég fór að spila hættuspilið með tvíeykinu mínu Hröbbu og Ellu, Möggu Stínu, Bitgittu og Kristjáni ... mjög gaman :) Vímuspjöldin voru ansi viðloðandi við mig en það var kannski bara viðeigandi þar sem ég var nú sötrandi gleðiaukandi drykki ;) Svo var kíkkað niður í bæ en ég var nú samt ekki mjög lengi þar sem röddin var eitthvað farin að gefa sig... Svo komu áramótin með tilheyrandi sötri.... þá var nú líka djammað eitthvað aðeins lengur!! Fínt að vera að koma heim þegar mamma og pabbi eru að koma á fætur:S Röddin algjörlega farin en það er í lagi því ég skemmti mér svo vel ;) Eitt sem er svo skemmtilegt við áramótin er hvað maður er alltaf glaður við að sjá gamla vini og kunningja allir að kyssast og knúsast! (fín afsökun til að kyssa alla þá sem manni hefur alltaf langað að kyssa;)) Svo líka að þetta með annann séns til að gera betur... nýtt ár er nýtt upphaf... og VONANDI  verður þetta ár betra en það síðasta sem fær klárlega tiltilinn erfiðasta árið mitt!!! Árið 2007 þarf nú ekki að vera mikið betra til þess að flokkast undir það að vera mjög gott!! Allt er betra en 2006! Eina sem ég er strax búin að sjá slæmt ( svo maður sé nú neikvæður á nýja árinu) er að nú get ég ekki lengur sagt að ég verði 25 á næsta ári... hálf fimmtugt er nú bara rétt handan við hornið!!8| En ég get nú samt huggað mig við það að Hrabba fær stærri tölu í afmælisgjöf:haha: En nóg í bili ég ætla að fara að leika við stubbulínu mína!! Gleðilegt árið og takk fyrir það gamla!!

Kveðja Katrín


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 14:18:39 / Katrín

Janúarhittingur!!! :) :) :)

Gleðileg jólin allir saman og takk fyrir fallegu gjafirnar og kortin sem við mæðgur fengum frá ykkur:) Það hefur nú ekki mikið borið  á daganna undanfarið nema mikið horft á FRIENDS, og ekki bara ég heldur er söngvaborg allveg komin til hliðar og Ólöf Alda orðin meiri háttar FRIENDS FAN!! Þegar lagið kemur er sko ekki hægt að ná sambandi við hana!! hehe lík mömmu sinni þessi sæta mús :) En ég er nú búin að vera mjög róleg yfir jólahátíðina, fyrir utan eitt djamm á annan í jólum og þá var mjög gaman;) Er ekki einu sinni viss um að ég ætli að djamma á áramótunum8| Veit ekki hvaða róleg heit eru í mér!! Ég er miklu spenntari fyrir hittingnum sem við Marta og Stella erum að plana!! :) Get reyndar ekki beðið:!: Við Marta ætlum að leigja okkur stúdíó íbúð og dóttirin skilin eftir hjá ömmu sinni og afa! Það er reyndar ekki búið að ákveða nákvæmlega hvaða helgi það verður en það verður pott þétt í janúar!! Við höfum ekki hist almeinilega síðan fyrstu helgina í feb árið 2003 hehehe enda verður þeirri helgi seint gleymt!! En alla vega Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!!

ps þið megið nú allveg vera duglegri að kommenta!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 22:28:14 / Katrín

Hún á afmæli í dag!!

Ok katrín pínu sein að muna en ....

Hún Sigrún Harpa mín, einn af mínum nýjustu gullmolum, á afmæli í dag!! Ekki nóg með það að hafa verið með henni í allan dag og meira að segja kom ég með snarl handa pæjunum mínum þá nefndi hún ekki eitt orð!!! Ég sem hefði getað þóst hafa verið að koma með afmælissnarl!!! En allavega til hamingju með afmælið sæta mín og við höldum nú ærlega uppá það þegar prófartíminn er liðinn!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 20:54:49 / Katrín

Nýjasta tækni og vísindi frá hinum heimsfræga uppfinningamanni...

Smá pæling!

Ég hef verið að pæla núnar undanfarnar vikur hvað konur og karlar eru ólíkt fyrirbæri. Allt þetta væl um að konur séu frá mars en karlar frá venus eða eitthvað svoleiðis er nú eiginlega bara farið að meika pínu sense!! Ég fór því að hugsa hvað gæti verið hentug lausn fyrir okkur konurnar og það fyrsta sem mér datt nottla í hug væri einfaldlega að snúast... já fara að snúa mér að að kvennfólkinu.... en þá var mér nú bent á það að tvær komur með fyrirtýðarspennu væri kannski ekki svo sniðugt! En þá datt mér snildarráð í hug... þarf bara að finna einhvern til að framleiða svoleiðis fyrir mig... en það er tölvukubbur með öllum þeim upplýsingum sem maður þarf að vita um hugsanlega maka.... t.d gæti það litið einhvern  veginn svona út
Hæð....
Þyngd...
Hárlitur...
Kostir: Einstaklega skapgóður! Hann er fimur, uppátækjasamur og góður elskhugi, með góðan hæfileika í eldhúsinu eins er hann mjög efnilegur til undaneldis, duglegur vinnukraftur (ætti því að skaffa vel) og hæfilega rómantískur! Klárlega einna konu maður!
Gallar: Ekki nógu klár á þvottavélina, en má þjálfa hann.... nauðsinlegt að halda honum í burtu frá öllum ávanabindandi efnum!

En auðvitað er þetta allt á frumstigi... kem til með að vinna betur í þessu þegar ég hef lokið við hjúkkuna... já eða eftir áramót!

Kveðja Katrín framtíðar uppfinningamaður með meiru:)

Ps. Ef einhver af mínum X les þetta þá er ég nottla bara að tala um reynslu í gegnum vinkonur mínar!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 20:38:13 / Katrín

Vefja og frumufræði!

Humm ég veit ekki hvort að það sé vegna þess að ég er búin að lesa svo ógeðslega mikið í vefja og frumufræði en mér fannst þetta svolitið fyndið og ákvað að deila því með ykkur....

Til eru ýmsir ónæmissjúkdómar og má þar nefna sjúkdóma eins og vöðvaslensfár og astma. Margir fræðimenn hafa velt því fyrir sér hver sé orsökin á þessum sjúkdómum og hafa margir haldið því fram að þar sé viss tegund af hvítu blóðkornum á ferð. Hvítu blóðkornin hafa mismundi starfi að gegna en í stórum dráttum þá sjá þeir um að eyða óvelkomnum pöddum sem koma inní líkamann. En nú hafa þessar frumur ekkert að gera þar sem að við lifum í gjörssamlega sótthreinsuðu umhverfi og fyrir löngu búið að ormahreinsa þjóðina.... Alla vega þá hafa menn hugleytt það af alvöru að eftir vill væri búið að finna lækningu við astma .... einfaldlega með því að smita viðkomandi af njálg!!! haha fannst þetta ansi fyndið... en aftur á móti er ég orðin ansi sýrð af lestri......
get samt alveg séð þetta fyrir mér... fara upp eftir með barnið sitt vegna astma og í staðinn fyrir að gefa barninu púst þá verður skrifað upp á eitt stykki njálg.... hahaha;)
Jæja best að halda áfram að lesa!

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 10:58:10 / Katrín

Hehe það er nú svoltið til í þessu:)

Ákvað að setja þetta hérna inn:)  Er reyndar svoltið gamalt en....

Hvað er köttur?
1. Kettir gera það sem þeir vilja.
2. Þeir hlusta aldrei á þig.
3. Þeir eru óútreiknanlegir.
4. Þegar þú vilt leika, þá vilja þeir vera einir.
5. Þegar þú vilt vera einn, þá langar þá að leika.
6. Þeir ætlast til að þú bregðist við í hvert skipti sem þeir væla.
7. Þeir eru geðvondir.
8. Þeir skilja eftir hár alls staðar.

Niðurstaða: Þeir eru litlar konur í loðnum búk.

Hvað er hundur?
1. Hundar flatmaga alltaf í þægilegasta stólnum í húsinu.
2. Þeir heyra þegar nammipoki er opnaður langt í burtu, en heyra ekki í þér, þó að þú sért í sama herbergi.
3. Þeir geta litið heimskulega og elskulega út á sama tíma.
4. Þeir væla þegar þeir eru óánægðir.
5. Þegar þú vilt leika, þá vilja þeir leika.
6. Þegar þú vilt vera ein, þá vilja þeir leika.
7. Þeir skilja dótið sitt eftir alls staðar.
8. Þeir gera ógeðslega hluti með munninum og reyna síðan að kyssa þig.
9. Þeir vaða beint í klofið á þér þegar þeir hitta þig.

Niðurstaða: Þeir eru litlir karlmenn í loðnum búk.

Frá Ellu litlu sys:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 17:19:17 / Katrín

Klettastígur!

Já ég er að hugsa um að fara að kveðja Bjarkarlundinn minn, það er að losna þriggja herbergja íbúð í Klettastígnum þar sem Hrabba systir á heima og gætum við mæðgur svo sannarlega hugsað okkur að flytja þangað! Mig langar að fara að koma mér fyrir  í minni eigin íbúð (þó það sé leiguíbúð) og fara að skipta dótinu okkar Magna. Er alveg farin að hugsa mér hvernig mig langar að innrétta;) Svo ætla ég að kaupa mér lítið kot þegar við erum búin að selja Bjarkarlundinn:D
Ef ég fæ íbúðina þá mun ég fá hana í byrjun des, þannig að ég gæti farið að flytja inn og innrétta eftir prófin:) úff hvað mig er nú samt farið að kvíða fyrir prófunum8|
En það verður bara gaman þegar þetta er búið og vonandi mikið djammað og haldið uppá að hafa komist áfram!
Jæja söngvaborg kallar :) ætla að setjast hjá mýslunni minni;)
Bæjó:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Hjúkkubeyglur:)